Formáli framkvæmdastjóra

Formáli framkvæmdastjóra

  • 01 Jan. 2005 - 01 January 0001
  • |
  • Last updated 04-Nov-2008 02:04

Trúverðugleiki NATO byggir á samstöðu og hernaðarhæfni – sannanlegri getu bandalagsins til þess að stuðla að samstarfi meðal aðildarríkja og sameina þau í krefjandi hernaðarlegum verkefnum í heimshlutum þar sem mikilvægiröryggishagsmunir eru í húfi. Í lj

Trúverðugleiki NATO byggir á samstöðu oghernaðarhæfni – sannanlegri getu bandalagsins til þess að stuðla aðsamstarfi meðal aðildarríkja og sameina þau í krefjandihernaðarlegum verkefnum í heimshlutum þar sem mikilvægiröryggishagsmunir eru í húfi. Í ljósi nýrra og áður óþekktra ógnavið sameiginlegt öryggi okkar verðum við að styrkja pólitískaumræðu okkar á milli til þess að tryggja áframhaldandi samheldnibandamanna. Í stuttu máli þurfum við að umbreytast.

Athygli almennings hefur mjög beinst aðframlagi NATO til friðar og stöðugleika á Balkanskaga,Miðjarðarhafi, í Afganistan og nú síðast í Írak. Einnig hefur veriðtöluverður áhugi á fjölgun aðildarríkja og dýpkun tengsla viðsamstarfsríki. En umbreyting NATO snýst um meira en það. Við höfumaðlagað stefnumið okkar og hugmyndir, herstjórnarkerfi oguppbyggingu heraflans, svo og innra skipulag og verkferli.Yfirstjórn umbreytingarmála hefur verið mikilvægt afl íumbreytingarferlinu á sviði hermála. Og nú þegar búið er að stofnaherfylki NATO gegn efna-, sýkla-, geisla- og kjarnavopnum(CBRN-herfylkið) erum við komin með sveit sem hefur gagngert þaðhlutverk að uppfylla einhverjar brýnustu öryggisþarfir sem nú eruuppi. Sérhvert hinna 26 aðildarríkja hefur verið að faragaumgæfilega yfir varnaráætlanir sínar og skipulag til þess aðtryggja að tekið sé mið af kröfum dagsins í dag. Margt hefur þegaráorkast. En umbreyting NATO er enn verk í vinnslu. Auk þess verðumvið að tryggja að skipulag höfuðstöðva NATO sé með þeim hætti aðþað styðji við þetta ferli.

Þrír meginþættir þessa starfs liggja ljósir fyrir. Í fyrsta lagiþurfum við að tryggja enn betur að herafli okkar sé nothæfur,tiltækur og leiðangursbúinn – að sjá til þess að miklu stærri hlutiaf herjum okkar sé tiltækur til starfa utan hefðbundins landssvæðisbandalagsins. Í öðru lagi verðum við að halda áfram að samræmabetur pólitískar og hernaðarlegar ákvarðanir okkar – með því aðbæta áætlanagerð okkar í varnarmálum og liðssöfnunarferli og meðþví að skýra aðfangastefnu okkar með betra jafnvægi millilandsframlaga og sameiginlegra framlaga. Loks, og það ergrundvallaratriði, þurfum við að auka pólitíska umræðu til þess aðstyrkja og viðhalda samráðinu yfir Atlantshafið, sem hingað tilhefur verið lykillinn að árangri af öllu því sem bandalagið hefurtekið sér fyrir hendur, eins og áfram mun verða. Ég er afar ánægðurmeð leiðtogafundinn í febrúar, þar sem leiðtogar NATO skuldbundusig til þess að styrkja bandalagið sem vettvang áætlanagerðar ogpólitísks samráðs og samhæfingar.

Til þess að umbreyting bandalagsins heppnist þarf að hugagaumgæfilega að skilvirkni núverandi skipulags höfuðstöðva NATO ogeinnig þurfa ríkisstjórnir og þjóðþing aðildarríkjanna að koma aðþessu máli af heilum hug. Ég vil gera mitt besta til þess aðtryggja að umbreyting NATO haldi áfram. Hún er lykillinn að getubandalagsins til þess að tryggja öryggi til framtíðar.