Næsta tölublað
Næsta hefti NATO-frétta mun skoða málefni og aðgerðir bandalagsins í kjölfar ráðstefnunnar í Ríga. Meðal höfunda efnis eru sérfræðingar í fremstu röð og framámenn. Fritz Rademacher mun beina sjónum að þjálfunarátaksverkefni NATO, Christophe Paillard og Gal Luft munu rökræða hvort NATO eigi að gegna veigamiklu hlutverki hvað orkuöryggi varðar, og Jonathan Parish mun horfa bak við tjöldin á hina „myrku list“ sem er smíði opinberra fréttatilkynninga. Í heftinu verður einnig viðtal við Raymond Henault hershöfðingja, formann hermálanefndar NATO og grein eftir Lawrence S. Kaplan, í tilefni þess að 40 ár eru síðan Harmel-skýrslan kom út.