Formáli – og kveðjuorð
Þetta hefti, sem tileinkað er ráðstefnunni í Ríga, horfir í mörg þau málefni sem leiðtogar bandalagsins munu ræða í höfuðborg Lettlands þann 28. og 29. nóvember. Í fyrstu greininni af tveimur, sem helgaðar eru meginþemanu, skýrir framkvæmdastjóri NATO, Jaap de Hoop Scheffer, hvað verður helst í brennidepli ráðstefnunnar og horfir á veginn fram á við fyrir NATO. Vaira Vīķe –Freiberga, forseti Lettlands, lýsir framtíðarsýn sinni fyrir bæði NATO og Lettland. Victoria Nuland, sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO, greinir frá væntingum Bandaríkjanna um ráðstefnuna. Pierre Lellouche, forseti NATO-þingsins, lýsir þeim áskorunum, sem bandalagið stendur frammi fyrir.

Í kveðjuviðtali sínu horfir James Jones hershöfðingi á síðustu fjögur ár sín sem yfirmaður herafla NATO í Evrópu. Diego Ruiz Palmer frá aðgerðadeild NATO horfir á þau varanlegu áhrif sem aðgerðir hafa haft á umbreytingu bandalagsins. Sophia Clément-Noguier frá Institut d’Etudes Politiques í París rannsakar þær áskoranir og þá valkosti, sem bandalagið stendur frammi fyrir.

Allen Sens frá University of British Columbia hvetur til víðtækari umbreytingar NATO. James Snyder, upplýsingafulltrúi NATO fyrir Bandaríkin, Danmörku og Noreg, sendir fréttatilkynningu frá Kabúl, þar sem hann lýsir sinni persónulegu reynslu frá Afganistan.
...upp...